Óskað eftir tilnefningum vegna Kuðungsins 2009
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2009. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Kuðungsins þarf fyrirtækið eða stofnunin að hafa skarað fram úr á einu eða fleiri eftirtöldum sviðum: Umhverfisstjórnun, innleiðingu nýjunga í umhverfisvernd, hreinni framleiðslutækni, lágmörkun úrgangs, mengunarvörnum, umhverfisvænni vöruþróun, framlagi til umhverfismála eða vinnuumhverfi.
Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en 25. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2009", á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.
Úthlutunarnefnd Kuðungsins hefur verið skipuð. Í henni sitja Sigþrúður Jónsdóttir formaður, skipuð af umhverfisráðherra, Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Guðbergur Rúnarsson fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.
Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Íslenska Gámafélagið hlaut Kuðunginn á liðnu ári fyrir störf á árinu 2008.