Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2010 Innviðaráðuneytið

Sameiningarkosningar í Eyjafirði 20. mars

Kosið verður um sameiningu sveitarfélaganna Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar í Eyjafirði laugardaginn 20. mars næstkomandi. Samstarfsnefnd um sameininguna hefur undirbúið kosninguna.

Gefið verður út kynningarblað um sameininguna út 3. mars og kynningarfundir haldnir 10. og 11. mars. Samanlögð íbúatala þessara sveitarfélaga var þann 1. desember 606 manns.

Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna hefur síðan í nóvember unnið að gerð málefnaskrár og áhersluatriða og munu þau birtast í kynningarblaðinu.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta