Forseti Maldíveyja Mohamed Nasheed á fund með Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Mohamed Nasheed forseti Maldíveyja, ásamt sendinefnd, átti fund með Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðrráðherra laugardaginn 13. mars 2010, í tilefni af opinberri heimsókn hans til Íslands. Rædd voru sjávarútvegsmál og möguleikar á samstarfi þjóðanna á þeim vettvangi. Forsetinn og fylgdarlið hans fengu einnig kynningu á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu og starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar.