Hoppa yfir valmynd
19. mars 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Handbók um kynjaða fjárlagagerð

Fréttatilkynning nr. 9/2010

Fréttatilkynning nr. 9/2010

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á kynjajafnrétti og er kynjuð fjárlagagerð ein leið að því marki.

Stefnt er að því að kynna fyrstu verkefni ríkisins í kynjaðri fjárlagagerð í fjárlögum ársins 2011. Verkefnisstjórn um kynjaða fjárlagagerð, sem skipuð var af fjármálaráðherra í apríl 2009, mun hafa yfirumsjón með því verki.

Af því tilefni hefur fjármálaráðuneytið gefið út handbók undir yfirskriftinni Kynjuð fjárlagagerð: handbók um framkvæmd, sem ætlað er að varpa ljósi á aðferðafræði kynjaðrar fjárlagagerðar og vera þeim sem að fjárlagagerðinni koma til halds og traust. Handbókin kom fyrst út á vegum Evrópuráðsins sl. sumar en höfundur bókarinnar er Sheila Quinn, sérfræðingur í jafnréttismálum, sem hefur komið að fjölmörgum verkefnum í kynjaðri fjárlagagerð á Bretlandi og víðar.

Í kynjaðri fjárlagagerð felst að kynjasamþættingu er beitt í öllu fjárlagaferlinu. Það þýðir að í fjárlagavinnunni fer fram mat á áhrifum fjárlaga á kynin og er markmiðið að endurskipuleggja bæði tekju- og gjaldahlið fjárlaga á grundvelli jafnréttissjónarmiða. Kynjuð fjárlagagerð snýst ekki um helmingaskipti milli kynjanna heldur um greiningu á þörfum og aðstæðum hverju sinni. Hún hefur þann kost að auka gagnsæi í ríkisfjármálum og gera það sýnilegra hvernig opinberu fé er varið í þágu þegnanna, jafnframt því að stuðla að betri markmiðssetningu.

Kynjuð fjárlagagerð: handbók um framkvæmd sem og frekari upplýsingar um kynjaða fjárlagagerð má nálgast á vef fjármálaráðuneytisins.

Fjármálaráðuneytinu, 19. mars 2010



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta