Styrkir úr Sprotasjóði
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir:
„Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.”
Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:
- Tengsl skólastarfs og grenndarsamfélags út frá hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
- Nemendur á mörkum skólastiga: Nám og kennsla
- Velferð í skólastarfi.
Við mat á umsóknum verða eftirfarandi viðmið höfð að leiðarljósi; skýr markmið verkefnis, verkefnisstjórn vel skilgreind, raunsæjar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir og framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint. Litið verður til þess hvort afrakstur verkefnisins sé líklegur til að hafa jákvæð áhrif á íslenskt skólastarf. Einnig verður skoðað hvernig verkefnin falla að áherslusviðum Sprotasjóðs. Verkefni sem falla utan áherslusviðs fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa á íslenska menntun.
Aðilar sem fengu styrk úr Sprotasjóði fyrir verkefni á skólaárinu 2009-2010 geta sótt um viðbótarstyrki fyrir skólaárið 2010-2011.
Fyrir skólaárið 2010 – 2011 verða til úthlutunar allt að 46 milljónir kr. og er umsóknarfrestur til 10. maí næstkomandi. Næsta úthlutun fer fram í júní 2010.
-
Athugið, umsóknafrestur í Sprotasjóð hefur verið framlengdur til 10. maí 2010
Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Stjórnarráðsins, http://umsokn.stjr.is.
Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 4608904 eða í tölvupósti á [email protected]