Kaup Magma Energy Sweden á hlut í HS Orku heimil
Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur fjallað um tilkynningu HS Orku hf. um fjárfestingu Magma Energy Sweden AB (MES) á hlutum í HS Orku hf. Ráðherra hefur nú borist álit nefndarinnar sem kemst að þeirri niðurstöðu að fjárfesting MES gangi ekki gegn ákvæðum laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Undir þetta álit skrifa Unnur G. Kristjánsdóttir formaður, Adolf Berndsen og Sigurður Hannesson.
Tveir nefndarmanna, Silja Bára Ómarsdóttir og Björk Sigurgeirsdóttir, skila séráliti þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að þessi fjárfesting sé á gráu svæði. Lagt er til að skorið verði úr um lögmæti kaupa MES með dómi en að öðrum kosti þurfi að skýra ásetning löggjafans með nýrri löggjöf.
Samkvæmt lögum um erlenda fjárfestingu nr. 34/1991 er fimm manna nefnd, nefnd um erlenda fjárfestingu, kjörinni af Alþingi ætlað að fylgjast með því að ákvæðum laganna um takmarkanir á fjárfestingu erlendra aðila sé framfylgt og leggja mat á lögmæti þeirra fjárfestinga.
Erlendum aðilum er almennt heimilt að fjárfesta í atvinnurekstri hér á landi. Í lögum nr. 34/1991 eru þó sérstakar takmarkanir settar við erlendri fjárfestingu í ákveðnum atvinnurekstri, s.s. sjávarútvegi og orkuiðnaði.
Efnahags- og viðskiptaráðherra er samkvæmt lögunum samkvæmt bundinn af ákvörðun nefndar um erlenda fjárfestingu. Ráðherra hefur tilkynnt kaupanda niðurstöðuna og að fjárfesting MES í HS Orku hf. samrýmist lögunum.
Álit meirihluta nefndar um erlenda fjárfestingu um tilkynningu HS Orku hf. um fjárfestingu Magma Energy Sweden AB (MES) á hlutum í HS Orku hf.
Álit minnihlutar nefndar um erlenda fjárfestingu um tilkynningu HS Orku hf. um fjárfestingu Magma Energy Sweden AB (MES) á hlutum í HS Orku hf.