Fundur um stöðugleikasáttmálann haldinn í dag
Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boðuðu í dag til fundar með aðilum stöðugleikasáttmálans. Fundinn sóttu fulltúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Kennarasambands Íslands, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtaka Íslands.
Á fundinum var samþykkt að hvetja Samtök atvinnulífisins til þátttöku í áframhaldandi vinnu á grundvelli stöðugleikasáttmálans.
Hjálagt er yfirlit yfir stöðu verkefna sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmálanum og farið var yfir á fundi aðila í dag.
Staða mála samkvæmt stöðugleikasáttmála
Reykjavík, 30. mars 2010