Nr. 22/2010 - Reglugerð um sérstaka úthlutun aflaheimilda í skötusel og reglugerð um veiðar á skötusel í net
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur undirritað tvær reglugerðir er snerta veiðar á skötusel.
Annars vegar er reglugerð um sérstaka úthlutun aflaheimilda í skötusel samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 22/2010, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í reglugerð þessari kemur fram að úthlutað er sérstaklega 500 tonnum af skötusel á fiskveiðiárinu 2009/10. Þessi úthlutun er gerð að höfðu samráði við Hafrannsóknastofnunina. Heimilt er að úthluta á skip allt að 5 lestum í senn gegn greiðslu gjalds, enda hafi viðkomandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni. Fiskistofa annast þessa úthlutun aflaheimilda sem skal fara fram eigi síðar en 3. maí 2010 á grundvelli umsókna sem borist hafa stofunni eigi síðar en 26. apríl 2010. Ef umsóknir um aflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru, skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á aflaheimildum skötusels er 120 kr. hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Framsal aflaheimilda sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt.
Hins vegar er um að ræða reglugerð um veiðar á skötusel í net. Hún fjallar um ýmis atriði er varða umgengni á skötuselsveiðum. Meðal annars eru í henni ákvæði um verndun svæða á Breiðafirði, hámarksstærð og gerð neta, merkingar neta, hámarksfjölda neta og hámarkstíma neta í sjó áður en þau eru dregin. Þá eru í reglugerðinni ákvæði um að óheimilt sé að stunda veiðar með skötuselsnetum á tímabilinu 1. janúar - 30. apríl. Síðan er ekki heimilt á sama tíma að stunda netaveiðar á skötusel og netaveiðar á þorskfiski.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
31. mars 2010
Reglugerð_um_sérstaka_úthlutun_aflaheimilda_i_skötusel
Reglugerð um veiðar á skötusel í net