Brettum upp ermar - bætum opinbera vefi!
Morgunverðarfundur á Grand Hótel þriðjudaginn 13. apríl kl. 8:00-10:00
Í framhaldi af fundum Ský um könnunina „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009“ sem haldnir voru þann 16. des. og 24. mars sl. efnir faghópur Ský um rafræna opinbera þjónustu til fundar þar sem fjallað verður ítarlega um niðurstöðurnar. Fundarmönnum gefst kostur á að rýna í tölur, bera sig saman við aðra, fá skýringar á tölum, finna styrkleika og veikleika vefja og draga fram hvaðeina sem talist getur áhugavert.
Allir sem láta sig varða vefmál, bæði vefþjónustuaðilar og forsvarsmenn vefja, eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í því að gera könnunina að sem bestu verkfæri til að framþróun opinberra vefja og þróun rafrænnar opinberrar þjónustu verði mun meiri og hraðari en verið hefur.
Æskilegt er að fundarmenn taki með sér fartölvur. Þráðlaust net er á staðnum.
Dagskrá
08:00 – 08:30 Húsið opnar, morgunverðarhlaðborð og spjall.
Fartölvum komið í netsamband08.30 – 08:40 Inngangur, tilgangur fundarins, framsetning niðurstaðna
Halla Björg Baldursdóttir - forsætisráðuneyti08:40 – 08:50 Brett upp ermar í Framkvæmdasýslu ríkisins – hvernig tókst til? Magnús K. Sigurjónsson - Framkvæmdasýslu ríkisins
08:50 – 09:00 Hvernig getum við nýtt niðurstöðurnar betur? Nýjar hugmyndir. Hjálmar Gíslason - DataMarket
09:00 – 09:30 Umfjöllun vinnuhópa um talnaefni könnunarinnar Umsjón: Jóhanna Símonardóttir – Sjá, Áslaug Friðriksdóttir - Sjá, Björn Sigurðsson – forsætisráðuneyti
09:30 – 10:00 Kynning á niðurstöðum vinnuhópa
Fundarstjóri: Sigrún Eva Ármannsdóttir
Undirbúningshópur: Faghópur um rafræna opinbera þjónustu
Niðurstöður og upplýsingar eru hér á vefnu „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009“
- Skráning á vef Ský, sky.is/felagid/skraning