Embætti skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ
Tíu umsóknir bárust um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn skólanefndar skipað Kristin Þorsteinsson í embætti skólameistara skólans til fimm ára, frá 1. ágúst 2010 að telja.