Heimasíða með fróðleik um strand- og fiskveiðimenningu
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði fyrir skömmu heimasíðuna fishernet.is. Síðan er unnin af Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og hún hefur að geyma margvíslegan fróðleik um strand- og fiskveiðimenningu Íslands.
Fishernet er heiti þriggja ára samevrópsks verkefnis sem miðar að því að varðveita, miðla og nýta menningararf sem tengist sjósókn, umhverfisþekkingu sjómanna og sérstakri menningu fiskveiðisamfélaga. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tekur þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd með áherslu á fiskveiðimenningu á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, en samstarf er einnig við fjölmargar stofnanir, söfn, sýningar, sérfræðinga, samtök og ekki síst áhugfólk sem á einn eða annan hátt sinna fiskveiðum og menningararfi á svæðinu.
Sjá nánar á heimasíðu Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.