Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2010 Matvælaráðuneytið

Nr. 25/2010 - Gripið til aðgerða strax vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og flóða í Svaðbælisá

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur kynnt þá ákvörðun í samráði við stjórn Bjargráðsjóðs að heimila að hafist verði handa við hreinsun túna á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum. Þessi tiltekni bær fór einstaklega illa undan flóðinu í Svaðbælisá og hluti túna eru þakin jökulleir og öðrum framburði. Mjög mikilvægt er að þetta verkefni sé hafið strax vegna vorkomunnar og eru bændurnir Pála Kristin Buch og Sigurður Þór Þórhallsson tilbúin að takast á við það með tilstyrk Bjargráðasjóðs. Stjórnarformaður Bjargráðasjóðs, Hildur Traustadóttir, hefur á undanförnum dögum kynnt sér aðstæður og  sótt upplýsingafundi sem hafa verið haldnir meðal íbúa á áhrifasvæði gossins. Samkvæmt upplýsingum Hildar mun stjórn sjóðsins funda í dag, 23. apríl, og fara yfir stöðu mála. En kappkostað verði að aðkoma sjóðsins verði bæði skjótvirk og skilvirk.

 

Á ferð sinni í gær um öskusvæðið undir Eyjafjöllum skoðaði Jón Bjarnsons, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ennfremur önnur vegsumerki eftir hlaup Svaðbælisár við bæinn Þorvaldseyri.  Augljóst er að farvegur árinnar þar efst er nú fullur af sandi og aur og getur alls ekki flutt mikið vatn án þess flæða yfir bakka sína og skapa þannig hættu á enn frekara tjóni en þegar er orðið á Þorvaldseyri.  Fyrir liggur að styrkja þarf og hækka varnagarða frekar og jafnvel dýpka farveg árinnar svo fljótt sem verða má. Slíkt verkefni er til skoðunar hjá Vegageðinni og Landgræðslu ríkisins í samráði við Ólaf Eggertsson bónda á Þorvaldseyri og væntir ráðherra þess að niðurstöðu um aðgerðir sé að vænta hið fyrsta.

 

Unnið er áfram að skoðun mála er tengjast sjálfu öskufallinu og aðgerðum tengdum því af samráðsnefnd ráðuneytisins ásamt öðrum aðilum.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta