Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Undirritun samnings um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, undirrita samninginn
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, undirrita samninginn

Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ. Ráðgert er að hefja framkvæmdir í sumar og að heimilið verði tekið í notkun vorið 2012.

Í samningnum er gert ráð fyrir að Mosfellsbær taki að sér að hanna og byggja 30 rýma hjúkrunarheimili við Hlaðhamra í Mosfellsbæ. Mosfellsbær leggur jafnframt til lóð undir bygginguna. Félags- og tryggingamálaráðuneytið mun á 40 árum greiða Mosfellsbæ hlutdeild í húsaleigu vegna húsnæðis sem ígildi stofnkostnaðar. Félags- og tryggingamálaráðherra gekkst nýlega fyrir lagabreytingu sem heimilar Íbúðalánasjóði að lána sveitarfélögum fyrir öllum byggingakostnaði hjúkrunarheimila og er framkvæmdin í Mosfellsbæ byggð á þeim grunni.

Níu sveitarfélög hafa átt í viðræðum við ríkið um byggingu hjúkrunarheimilis og hefur Mosfellsbær verið í forsvari fyrir þau. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Í Mosfellsbæ hefjist í sumar og það verði tekið í notkun vorið 2012.

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar sagði við undirritunina í dag: „Með tilkomu hjúkrunarheimilis rætist langþráður draumur Mosfellinga, en bæjaryfirvöld hafa frá árinu 1998 leitað samþykkis ráðuneytisins um heimild til byggingar og rekstur hjúkrunarheimilis. Með tilkomu heimilisins verður síðasti hlekkurinn í mikilvægri þjónustukeðju við íbúa að veruleika.“

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherraÁrni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, sagði við þetta tækifæri að einkar ánægjulegt væri að nú yrði af þessum langþráðu framkvæmdum. Löngu væri tímabært að hefja endurbyggingarátak og sérstaklega ánægjulegt væri að hægt væri að hleypa því af stokkunum á tímum þrenginga í efnahagslífinu. Framundan væri uppbygging 360 rýma sem kallaði á 1.200 ársverk í uppbyggingunni, vítt og breitt um landið. Með þessu átaki náist að loka öllum tví- og þríbýlum á hjúkrunarheimilum og aðstaða þeirra sem þjónustuna njóta þannig bætt til muna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta