Dagur upplýsingatækninnar 2010
Dagur upplýsingatækninnar 2010 verður haldinn 20. maí nk. Að þessu sinni verða 2 ráðstefnur haldnar á UT-deginum og er hægt að taka þátt í þeim báðum eða velja aðra þeirra. Báðar ráðstefnurnar verða í Salnum í Kópavogi. Í lok dagsins verða Upplýsingatækniverðlaun Ský veitt og boðið verður uppá léttar veitingar.
Hvernig má standa að nýsköpun í opinberum rekstri og hverju getur hún skilað?
Reynsla annarra þjóða, íslensk dæmi um nýja afurð, ný vinnubrögð, nýja mælikvarða
20. maí kl. maí kl. 10:30- 12:15 í Salnum Kópavogi
Að ráðstefnunni standa Stofnun stjórnsýslufræða og Félag forstöðumanna ríkisstofnana
Erindi flytja:
- Su Maddock, forstöðumaður The Whitehall Innovation Hub,
- Ómar H. Kristmundsson, dósent í stjórnsýslufræðum við H.Í.,
- Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Trackwell,
- Sóley Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Vestfjarða um málefni fatlaðra,
- Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs,
- Guðmundur Hannesson forstöðumaður ráðgjafasviðs Ríkiskaupa,
- Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
Skráning og nánari upplýsingar á www.sky.is
Horft til framtíðar
Ráðstefna UT-dagsins
20. maí kl. 12:00 – 17:00 í Salnum Kópavogi
Að ráðstefnunni standa forsætisráðuneytið, Skýrslutæknifélag Íslands, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja, Stofnun stjórnsýslufræða og Félag forstöðumanna ríkisstofnana.
Skráning og nánari upplýsingar á www.sky.is
12:00 Skráning og afhending ráðstefnugagna
Létt hádegissnarl frá kl. 12:00 - 13:00
Spjall með sérfræðingum – umræðuefni eru eftirfarandi:
- Útflutningur á hugbúnaði
Andri Marteinsson, verkefnisstjóri, Björn H. Reynisson, verkefnisstjóri og Hermann Ottósson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði
- Skattalegt umhverfi og sjóðir fyrir upplýsingatækni- og nýsköpunarfyrirtæki
Jón Ásgeir Tryggvason, skrifstofustjóri hjá Ríkisskattstjóra, Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, Elísabet Andrésdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs, og Aðalheiður Jónsdóttir, kynningarstjóri hjá Rannís
- Rafrænir reikningar- staðlar og innleiðing
Ragnar T. Jónasson, formaður tækninefndar FUTum grunngerð rafrænna viðskipta og Baldur M. Bragason, sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins
- Rafræn auðkenning og rafræn eyðublöð á Ísland.is
Rebekka Rán Samper, verkefnisstjóri Ísland.is og Halla Björg Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu í forsætisráðuneyti
- Rafræn skilríki – útgáfa og notkun
Haraldur A. Bjarnason, sérfræðingur í fjármálaráðuneyti, Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans
13:00 Ávarp: Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
13:15 Breytingar á skipulagi upplýsingatækni- og umbótamála hjá ríkinu
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyti
13:35 Sóknaráætlun 20/20 – Framtíðarsýn um tæknilega innviði samfélagsins
Dagur B. Eggertsson, formaður stýrihóps 20/20
13:55 Árangursríkt samstarf opinberra aðila og einkaaðila - Videntifier forensics
Steinarr Kr. Ómarsson, lögreglufulltrú hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
14:15 Netumsóknarkerfi fyrir atvinnuleysisbætur - Hvaða hindranir þurfti að yfirstíga og hver var ávinningurinn?
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar
14:30 Kaffi og spjall með sérfræðingum
14:50 Hvernig er hægt að búa í haginn fyrir vaxandi UT-iðnað?
Hilmar Pétursson, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og framkvæmdastjóri CCP
15:10 Verðmætasköpun, útflutningur og ný atvinnutækifæri
- Helgi Helgason, rekstrarstjóri gagnavers Verne Global
- Magnús Ingi Óskarsson, Strategic Architect, Sabre Airline Solutions
- Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentor
- Jón Kristjánsson, framkvæmdastjóri Manna og músa
- Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri Betware
16:00 Upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands
Ávarp og verðlaunaafhending: Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra
Léttar veitingar
17:00 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri: Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti