Hoppa yfir valmynd
17. maí 2010 Dómsmálaráðuneytið

Skipaður saksóknari við ríkissaksóknaraembættið

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra skipaði þann 16. maí sl., Daða Kristjánsson, settan saksóknara, í embætti saksóknara við ríkissaksóknaraembættið frá og með 16. maí 2010 til fimm ára.

Umsóknarfrestur rann út 23. apríl síðastliðinn. Aðrir umsækjendur um embættið voru Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara, og Hulda María Stefánsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá embætti ríkissaksóknara.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum