Ferð viðbragðsteymis ferðaþjónustunnar á gossvæðin
Fréttatilkynning nr 6/2010
Samráðshópur stjórnvalda og ferðaþjónustu hefur verið starfandi frá upphafi goss í Eyjafjallajökli undir forystu iðnaðarráðherra. Viðbragðsteymið heimsækir í dag, þriðjudag 18. maí, ferðaþjónustuaðila, forsvarsmenn sveitarfélaga og almannavarna á Hvolsvelli, í Vík og á Moldnúpi undir Eyjafjöllum. Einnig mun hópurinn kynna sér ástand mála á ýmsum stöðum í Fljótshlíð, undir Eyjafjöllum og í Mýrdal sem hafa orðið fyrir mestum búsifjum af völdum gossins og hlýða á sjónarmið um aðgengi ferðamanna að þessum slóðum í sumar. Gert er ráð fyrir að iðnaðarráðherra sláist í hópinn eftir ríkisstjórnarfund. Hópurinn verður á Hvolsvelli kl. 10.30, í Vík kl., 13 og á Hótel Önnu, Moldnúpi kl. 16:00.
Í samráðshópi stjórnvalda og ferðaþjónustu eru fulltrúar iðnaðarráðuneytis, Almannavarna, Höfuðborgarstofu, samgönguráðuneytis, utanríkisráðuneytis, Ferðamálastofu, Útflutningsráðs, Samtaka ferðaþjónustufyrirtækja, Icelandair og Iceland Express.
Reykjavík 18. maí 2010.