Markaðsátak í ferðaþjónustu vegna áhrifa eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli.
Markaðsátak í ferðaþjónustu vegna áhrifa eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli.
Iðnaðarráðherra boðar til blaðamannafundar í dag, miðvikudag, 19. maí 2010 kl. 14:30.
Kynntar verða áherslur markaðsátaksins og nýtt kynningarefni sýnt í fyrsta sinn.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og forsvarsmenn aðildarfyrirtækjanna sitja fyrir svörum.
Aðild að átakinu eiga, auk iðnaðarráðuneytis: Reykjavíkurborg, Icelandair, Iceland Express, Samtök ferðaþjónustunnar og Útflutningsráð.
Fundurinn verður haldinn á Ferðamálastofu, Geirsgötu 9 (gömlu Hafnarbúðir) og hefst kl. 14.30.
Nánari upplýsingar veitir Einar Karl Haraldsson, s. 840 6888