Hoppa yfir valmynd
31. maí 2010 Matvælaráðuneytið

Nr. 33/2010 - Verðtollar og magntollar- máli hallað

Nú alveg nýlega hafa Samtök verslunar og þjónustu birt á heimasíðu sinni umfjöllun um hvort auglýsingar á tollkvótum fyrir ýmsar landbúnaðarafurðir séu löglegar eftir að farið var að miða við verðtoll í stað magntolls áður. Í umfjölluninni er því einnig haldið fram að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vilji koma í veg fyrir góðan hag íslenskra neytenda þannig að þeir fái ekki notið þeirra afurða sem þeir eiga rétt á skv. skuldbindingum okkar gagnvart Alþjóðaviðskipta­stofnuninni. Loks er tiltekið að samtökin segjast hafa sent erindi til utanríkisráðuneytisins vegna þessa og óskað eftir því að það kanni hvort þessi aðferð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins standist skuldbindingar okkar gagnvart WTO og segja að svars utanríkisráðuneytisins sé að vænta á næstu dögum.

Ýmislegt er við þessa umfjöllun Samtaka verslunar og þjónustu að athuga þó stutt sé.

Hér skal í fyrsta lagi bent á 4. gr. laga nr. 87/1995um breytingar á lögum vegna aðildar Íslands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Þar stendur í 3. mgr. “Tollur á vörur frá aðildarríkjum Alþjóðaviðskipta-stofnunarinnar má eigi vera hærri en þær tollabindingar sem tilgreindar eru í viðaukum IIA og IIB með lögum þessum. Miðist tollabinding bæði við verð og magn skal hámarkstollur miðast við þá bindingu sem hærri álagningu leyfir.”

Ljóst er skv. þessu að ráðuneytinu er beinlínis skylt með lögum að miða við þá bindingu sem hærri er.

Í öðru lagi er tiltekið í sömu lögum að hið íslenska stjórnvald sem fer með framkvæmd og úthlutun tollkvóta fyrir landbúnaðarvörur er landbúnaðarráðherra en ekki utanríkisráðherra. Skýrt er kveðið á um meðferð mála gagnvart stjórnsýslunni í stjórnsýslulögum. Má vera að Samtök verslunar og þjónustu þurfi að kynna sér það efni betur.

Að lokum er því alfarið hafnað að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið láti sér ekki annt um hag íslenskra neytenda þótt það hvetji umfram annað nú til notkunar á íslenskrar framleiðslu á sem flestum sviðum, sem er í senn atvinnuskapandi og sparar gjaldeyri.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta