Hoppa yfir valmynd
1. júní 2010 Matvælaráðuneytið

Samstarf um eflingu nýsköpunar í opinberum rekstri

Samstarf um eflingu nýsköpun í opinberum rekstri
Samstarf um eflingu nýsköpun í opinberum rekstri

Samstarfsamningur um eflingu nýsköpunar í opinberum rekstri var undirritaður þann 21. maí síðastliðinn í Háskóla Íslands að viðstaddri Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, auk nemenda og erlendra fyrirlesara á námskeiði um nýsköpun í opinberum rekstri. Að samstarfinu standa Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannsóknarmiðstöð Íslands (RANNÍS).

Aðilar munu vinna að markmiði samningsins með ýmsu móti; með námskeiðahaldi og ráðstefnum, þróunarverkefnum, rannsóknum og umræðuvettvangi fræðimanna, sérfræðinga og þeirra sem daglega starfa við opinbera þjónustu. Jafnframt að vinna að söfnun upplýsinga um nýsköpunarverkefni á sviði opinberrar stjórnsýslu og gera þær aðgengilegar og leita samstarfs við erlenda aðila á þessu sviði. Miklar umbreytingar eru framundan í opinberum rekstri, m.a. vegna niðurskurðar á fjármagni til þjónustu og verkefna á vegum ríkisins og endurskipulagningar í kjölfarið. Því má segja að þörf fyrir skipulagða nýsköpun hafi aldrei verið meiri.

Samstarfssamningurinn er til þriggja ára. Undir samninginn skrifuðu Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor og formaður stjórnar Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, Halldór Jónsson forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Íslands og Þorsteinn I Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.




Samstarf um eflingu nýsköpun í opinberum rekstri
Samstarf um eflingu nýsköpun í opinberum rekstri

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta