Katrín Jakobsdóttir tekur á móti Helenu Dam af Neystabø mennta- og menningarmálaráðherra Færeyja
Mennta- og menningarmálaráðherra Færeyja, Helena Dam á Neystabø, kom í gær hingað til lands í heimsókn. Á föstudag hitti hún mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttir, að máli og fundaði með starfsmönnum ráðuneytisins um vísindi, mennta- og menningarmál og alþjóðasamstarf.
Á fundunum kom fram að það er greinilega mikill samstarfsvilji fyrir hendi hjá frændum okkar í Færeyjum í málefnum vísinda, skóla og menningar.
Helena Dam mun einnig kynna sér starfsemi skóla og menningarstofnana og heimsækja meðal annars Listaháskóla Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Háskóla Íslands og Listahátíð.