Hoppa yfir valmynd
7. júní 2010 Matvælaráðuneytið

Landkynning í Belgíu

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra tók í morgun þátt í kynningu á vegum Útflutningsráðs og Ferðamálastofu í Brussel á stöðu ferðamála á Íslandi fyrir 30 blaðamenn og fulltrúa ferðaheildsala í Belgíu. Ráðherra ræddi einnig við fjölmiðla að lokinni kynningu. Á fundinum flutti Rikke Pedersen forstöðumaður Norræna eldfjallasetursins ítarlegt erindi um gos í Eyjafjallajökli og eldfjallarannsóknir á Íslandi. Þá gerði Davíð Jóhannsson Evrópufulltrúi Ferðamálastofu grein fyrir átakinu Inspired by Iceland. Allir viðstaddir fengu ösku úr Eyjafjallajökli í gjafapakkningum. Ferðamönnum frá Belgíu til Íslands hefur farið fjölgandi síðustu ár og benda bókanir í beint flug Icelandair frá Brussel til Keflavíkur, sem hófst síðastliðinn laugardag, til þess að áframhald verði á þeirri þróun.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta