Niðurstaða útboðs á tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum og afskornum blómum
Tilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu
Miðvikudaginn 2. júní 2010 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2010.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 1.500 stk. á meðalverðinu 131 kr./stk. Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 100 kr./stk. Eitt tilboð reyndist vera ógilt.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 1.800 stk. á meðalverðinu 122 kr./stk. Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 80 kr./stk. Eitt tilboð reyndist vera ógilt.
Tvö tilboð bárust vegna innflutnings á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk. á meðalverðinu 6 kr./stk. Hæsta boð var 35 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk.
Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 76.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur júlí – desember 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
1.500 |
Húsasmiðjan/Blómaval |
Aðrar pottaplöntur júlí – desember 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
1.800 |
Húsasmiðjan/Blómaval |
Tryggðablóm júlí – desember 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
1.200 |
Gróðurvörur ehf |
5.300 |
Samasem ehf. |
Afskorin blóm júlí – desember 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
11.000 |
Gróðurvörur ehf. |
35.000 |
Grænn Markaður ehf. |
30.000 |
Samasem ehf. |
Reykjavík, 11. júní 2010
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið