Drög að reglugerð um frístundafiskiskip og öryggi þeirra
Drög að reglugerð um frístundafiskiskip og öryggi þeirra er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið [email protected] til 30. júní.
Markmið reglugerðarinnar er að setja skilyrði fyrir skráningu skips sem frístundafiskiskips á skipaskrá og kveða á um þær reglur sem gilda skulu um öryggi þeirra. Í henni er að finna skilgreininingar um hvað sé frístundaskip, um stærð og farsvið slíkra skipa og ákvæði um björgunar- og öryggisbúnað þeirra. Einnig er að finna þar ákvæði um leigu þeirra og um kennslu starfsmanna bátaleigu á skipstjórn við leigu á slíkum farkosti.
Setning reglugerðarinnar byggist á 3. mgr. 7. gr. laga nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa og fleira eins og þeim var breytt með lögum nr. 155/2009.
Eins og fyrr segir er unnt að senda ráðuneytinu athugasemdir um reglugerðardrögin til og með 30. júní næstkomandi.
- Drög að reglugerð um frístundafiskiskip og öryggi þeirra
- Drög að reglugerð um frístundafiskiskip og öryggi þeirra