Hoppa yfir valmynd
16. júní 2010 Matvælaráðuneytið

Iðnaðarráðherra opnar norræna kvikmyndahátíð í Shanghæ

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opnaði formlega norræna kvikmyndahátíð sem haldin er sem hluti af Shanghæ kvikmyndahátíðinni 2010. Í ávarpi sínu lagði ráðherra áherslu á mikilvægi menningar og skapandi greina, ekki aðeins fyrir sjálfsmynd og samskipti landa heldur einnig efnahags- og atvinnulíf. Hún vék meðal annars að aukinni ásókn erlendra kvikmyndagerðarmanna í að taka myndir á Íslandi og þá kosti sem þeim bjóðast. Nánari upplýsingar um hátíðina má nálgast á http://www.siff.com/.

Ávarpið á ensku er í heild á enska hluta vefs iðnaðarráðuneytisins.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta