Hoppa yfir valmynd
24. júní 2010 Matvælaráðuneytið

Nr. 42/2010 Ný reglugerð - Aukinn leyfilegur heildarafli í sumargotssíld

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur í dag aukið leyfilegan heildarafla í íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2009/2010 um 5.000 lestir og því hækkar hann í 52.000 lestir. Er þetta gert í því augnamiði að auðvelda makrílveiðar sumarsins 2010, þar sem óhjákvæmilegt er að íslenska sumargotssíldin veiðist sem meðafli við þær veiðar. Komi ekki til þessarar aukningar er fyrirséð að ekki verði unnt að stunda makrílveiðarnar með eðlilegum hætti. Þessi aukning á núverandi fiskveiðiári verður dregin frá þeim leyfilega heildarafla sem verður gefinn út í íslensku sumargotssíldinni á komandi fiskveiðiári. Það skal áréttað að veiðitímabili íslensku sumargotssíldarinnar lauk 30. apríl sl. og þessi aukning nú er því ekki ætluð til beinna veiða á tegundinni, heldur einvörðungu sem úrræði vegna meðafla við aðrar veiðar. Fyrir liggur vilji útgerða að miðla þessum heimildum eftir mætti, þannig að aðrir sem stunda veiðar á markíl en ráða ekki yfir heimildum í síld, geti stundað makrílveiðar með eðlilegum hætti.

Breyting á rg. nr. 676/2009

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta