Hoppa yfir valmynd
25. júní 2010 Matvælaráðuneytið

Átján styrkir til að rannsaka og kynna innlenda orkugjafa og hagkvæma orkunotkun.

Úthlutun úr Orkusjóði 2010 mynd af styrkþegahópnum
Úthlutun úr Orkusjóði 2010 mynd af styrkþegahópnum

Fréttatilkynning nr 13/2010
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2010. Styrkirnir eru veittir til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun.

Veittir eru 18 styrkir að upphæð 22,8 milljónir króna. Alls bárust 52 umsóknir um samtals 126 m.kr. og voru í þeim hópi ýmis áhugaverð og mikilsverð verkefni sem ekki var unnt að styrkja að þessu sinni.

Rannsóknar- og fræðslustyrkir eru veittir árlega úr Orkusjóði samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga nr. 87/2003, um Orkustofnun, Orkuráð og Orkusjóð, til „sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi“ og til „verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni“. Í auglýsingu var nú líkt og undanfarin ár lögð áhersla á verkefni sem snertu hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað, innlenda orkugjafa, vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis. Um hvern styrk er gerður samningur þar sem kveðið er á um verk- og kostnaðaráætlun, áfanga við greiðslu styrkfjárhæðarinnar, framvinduskýrslur og skilagögn. Miðað er við að styrkir úr Orkusjóði geti numið allt að helmingi kostnaðar við verkefnið sem styrkinn hlýtur eða þann hluta þess sem styrktur er.

Stærsti styrkurinn nú fer til verkefnis um eldsneytisframleiðslu úr örverum, og annar litlu minni til lífmassaverkefnis. Að öðru leyti má segja að samgöngur – rafbílar og hjólreiðar – og sjávarútvegur skipi öndvegi við styrkúthlutunina, enda einna mest þörf á orkuskiptum í þessum greinum. Tveir styrkir tengjast landbúnaði og aðrir tveir rekstri smávirkjana.

Orkuráð starfar í tengslum við Orkustofnun og er meginhlutverk þess að sjá um rekstur Orkusjóðs. Sjóðurinn veitir  áhættulán til jarðhitaverkefna og  styrki til rannsókna og fræðsluverkefna um endurnýjanlega orku, orkunýtingu og orkusparnað. Iðnaðarráðherra skipar  í ráðið til fjögurra ára í senn og starfa þar frá 2007 þau Mörður Árnason, formaður, Bryndís Brandsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Guðmundsson og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir.

                                                           Reykjavík, 25. júní 2010.

Rannsóknar- og fræðslustyrkir úr Orkusjóði 2010 lýsing á verkefnum

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta