Yfirlýsing ríkisstjórnar vegna tilmæla Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins
Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið hafa sent frá sér tilmæli til fjármálafyrirtækja um hvernig þeim beri að fara með gengisbundin lán.
Þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla er mikilvægt að stöðugleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eiga að sjálfsögðu síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna gengisbundinna lána og verður réttur aðila til að bera mál undir dómstóla auðvitað ekki frá þeim tekinn og er mikilvægt að niðurstaða fáist sem fyrst.