Herjólfur prófaður í Landeyjahöfn
Herjólfur sigldi undir miðnætti í gærkvöld í Landeyjahöfn til prófunar áður en reglulegar áætlunarsiglingar hefjast milli hafnarinnar og Heimaeyjar næstkomandi miðvikudag. Skipsflautan var þeytt þegar siglt var um hafnarmynnið.
Vindur stóð af landi en fremur kyrrt var á sjó og gekk innsiglingin vel. Herjólfi var siglt í Landeyjahöfn eftir áætlunarferðir dagsins og fór tvær ferðir inní höfnina og að bryggju. Í síðari ferðinni var stefninu lyft og bílaþilfarið opnað.
Auk áhafnar voru fulltrúar Siglingastofnunar með í siglingunni og starfsmenn Eimskips og verktaka sem eru að ljúka við gerð hafnarinnar og þjónustuhúss tóku á móti skipinu. Þá var nokkur mannfjöldi við höfnina þegar Herjólfur lagðist uppað og fagnaði með lófataki.
Vígsluhátíð verður þriðjudaginn 20. júlí en þann dag siglir Herjólfur síðustu ferð sína milli Heimaeyjar og Þorlákshafnar. Síðdegis verður síðan haldið í Landeyjahöfn þar sem Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri afhendir höfnina formlega Kristjáni L. Möller samgönguráðherra. Daginn eftir hefjast síðan siglingar samkvæmt áætlun en farnar verða 4-5 ferðir daglega milli lands og Eyja.
Fulltrúar Eimskips, Guðmundur Nikulásson og Guðmundur Pedersen, fylgdust með í gærkvöldi.