Nr. 47/2010 - Úthlutun á 1100 tonnum af þorski og 800 af ýsu
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerð um úthlutun á 1100 tonnum af þorski og 800 tonnum af ýsu sem áður hafði verið ráðstafað til línuívilnunar. Þessi úthlutun nú kemur þó ekki til með að auka áður leyfðan heildarafla í þorski og ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári. Hér er einungis verið að ráðstafa þeim aflaheimildum er áður hafði verið ráðstafað til línuívilnunar sem ljóst er að ekki munu nýtast til hennar.
Þannig er í raun ekki um það að ræða að með ákvörðun sinni sé ráðherra að auka leyfilegan heildarafla í tegundunum tveimur, því 1100 tonnum af þorski og 800 tonnum af ýsu sem sýnt þykir að ekki nýtast til línuívilnunar er ráðstafað með öðrum hætti.
Við ákvörðun ráðherra er vísað til heimildar 3.gr. laga nr. 116. frá 2006 þar sem segir að ráðherra sé heimilt innan fiskveiðiársins að auka eða minnka leyfðan heildarafla einstakra botnfisktegunda.
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 676/2009 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðárið 2009/2010