Forsætisráðherra heiðursgestur á Íslendingahátíðum í Gimli og Mountain
Forsætisráðherra verður heiðursgestur á Íslendingahátíðum í Kanada og Bandaríkjunum dagana 30. júlí – 2. ágúst næstkomandi. Íslendingahátíð er nú haldin í 111. sinn í Mountain, Norður Dakóta og í 121. sinn í Gimli í Manitoba. Forsætisráðherra mun taka þátt í dagskrá og menningarviðburðum á hátíðunum og flytja ávarp á hvorum stað.
Forsætisráðherra mun einnig funda með Greg Selinger, forsætisráðherra Manitoba, og taka þátt í fjölbreyttum menningarviðburðum og heimsóknum tengdum vesturferðum Íslendinga í upphafi síðustu aldar.