Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2010 Matvælaráðuneytið

Lánveitingar í erlendri mynt

Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins 9. ágúst var sagt að efnahags- og viðskiptaráðherra hefði í þingræðu 1. júlí 2009 fullyrt að lögfræðingar ráðuneytisins teldu að gengistryggð lán væru lögleg. Þá fullyrti Eygló Harðardóttir þingmaður í viðtali við Ríkisútvarpið 10. ágúst að ráðherra hefði veitt Alþingi rangar upplýsingar varðandi gengistryggð lán. Hér fer þingmaðurinn með rangt mál. Í ræðu ráðherra sem birt er á vef Alþingis kemur skýrt fram að ráðherra vitnar til niðurstöðu sérfræðinga ráðuneytisins um lögmæti lána í erlendri mynt.
Í umræðunni beindi Ragnheiður Ríkarðsdóttir þingmaður eftirfarandi spurningu til ráðherra: „Telur [ráðherra] lögmæti myntkörfulána hafið yfir allan vafa?“ (http://www.althingi.is/altext/raeda/137/rad20090701T142746.html). Svar ráðherra var eftirfarandi:  „Ég vík fyrst að fyrirspurn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um lögmæti lána í erlendri mynt. Lögfræðingar bæði í viðskiptaráðuneytinu og annars staðar í stjórnsýslunni hafa vitaskuld skoðað það mál. Niðurstaða þeirra er að lánin séu lögmæt. En það er auðvitað ekki framkvæmdarvaldsins að skera úr um það.“  Í svari ráðherra kom einnig fram að ef réttarágreiningur risi um þessi lán væri það dómstóla að skera úr um lögmæti þeirra, það væri hvorki á valdi viðskiptaráðuneytisins né annarra arma framkvæmdarvaldsins að gera það (http://www.althingi.is/altext/raeda/137/rad20090701T143442.html).
Tilvitnuð ummæli ráðherra komu fram í svari ráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar þingmanns á Alþingi um bílalán í erlendri mynt, fjölda einstaklinga sem væru með erlend lán til kaupa á bifreið, hversu há lánin væru, verðmæti veðsettra bifreiða og hvort ráðherra hygðist grípa til aðgerða til að aðstoða þá einstaklinga sem skuldi bílalán í erlendri mynt.  Spurningar þingmannsins eru birtar á vef Alþingis (http://www.althingi.is/altext/137/s/0065.html) og svar ráðherra (http://www.althingi.is/altext/raeda/137/rad20090701T142336.html).
Þann 9. júní 2009 gerði lögfræðingur viðskiptaráðuneytisins minnisblað um lánveitingar í erlendri mynt.  Ráðherra var kynnt efni minnisblaðsins 24. júní 2009. Niðurstaða minnisblaðsins sem birt er hér á vef ráðuneytisins var sú að hvorki lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001lög um neytendalán nr. 121/1994 banni lánveitingar í erlendri mynt.
Svar ráðherra er þannig í samræmi  við niðurstöðu minnisblaðs ráðuneytisins.  Athygli skal vakin á því að í spurningu Ragnheiðar var talað um myntkörfulán,  í spurningum Birkis Jóns um erlend lán og í svari ráðherra um lán í erlendri mynt. Eins og fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins var við því að búast að réttarágreiningur kynni að rísa um það hvort lánssamningur sé raunverulega í íslenskum krónum eða í erlendum gjaldmiðli.  Lög nr. 38/2001 taki jafnframt af skarið um það að verðtrygging á lánum í íslenskum krónum sé aðeins heimil ef grundvöllur verðtryggingarinnar er vísitala neysluverðs. Niðurstaða um þessi álitaefni veltur á atvikum hverju sinni, efni samnings og atvikum við samningsgerð og eiga dómstólar lokaorðið.
Minnisblað ráðuneytisins tiltekur þannig dæmi um mismunandi gerðir samninga og að heildarmat þurfi að fara fram á efni samnings, með hliðsjón af atvikum við samningsgerð, stöðu samningsaðila o.s.frv., sem kallar „á sjálfstæða túlkun m.t.t. þess mögulega álitaefnis hvort um ræði lánveitingu í íslenskum krónum eða lánveitingu í erlendum gjaldmiðli. Það er dómstóla að skera úr um slíkt í hverju tilviki fyrir sig, svo sem áður greinir.“
Seðlabankinn hefur þegar birt á vef sínum minnisblað aðallögfræðings bankans og lögfræðiálit lögfræðistofunnar LEX til bankans. Vegna frétta fjölmiðla um það hvort ráðuneytinu hafi verið birt þessi álit skal það tekið fram að lögfræðingur ráðuneytisins sem samdi minnisblað ráðuneytisins fékk afrit af þessum skjölum vegna þeirrar vinnu sinnar en ekki til annarra nota. Seðlabankinn kynnti ekki efni minnisblaðanna fyrir ráðherrum. Viðskiptaráðherra var því ekki kunnugt um minnisblöð Seðlabankans þegar umræðan á Alþingi átti sér stað.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta