Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2010 Innviðaráðuneytið

Drög að reglugerð um flugreglur til umsagnar

Drög að reglugerð um flugreglur er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á póstfangið [email protected]  til 27. ágúst.

Með reglugerðadrögum þeim sem hér eru til umsagnar er innleiddur í íslenskan rétt viðauki nr. 2 við Chicago samninginn um alþjóðlegt almenningsflug ( Convention on International Civil Aviation ) en hann fjallar um flugreglur.

Ísland hefur verið aðili að Chicago samningnum frá árinu 1947 og hefur ákvæðum hans verið framfylgt hér á landi. Næstkomandi haust er fyrirætluð allsherjar úttekt Alþjóðaflugmálastjórnarinnar (ICAO) á flugmálum á Íslandi og af því tilefni hefur verið ráðist í að innleiða með formlegum hætti viðauka við samninginn. Eru meðfylgjandi reglugerðardrög þáttur í þeirri innleiðingu.

Er uppsetning reglugerðarinnar með þeim hætti að gerðin sjálf saman stendur af nokkrum almennum ákvæðum en við hana er svo bætt tveimur viðaukum þar sem finna má nánari efnisákvæði. Eru viðaukarnir óaðskiljanlegur hluti af reglugerðinni.

Setning reglugerðar þessara felur ekki í efnislega breytingu á flugreglum hér á landi enda hefur ákvæðum viðauka 2 við Chicago samninginn almennt verið framfylgt hér á landi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta