Utanríkisráðherra á fund Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Ríga
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tekur þátt í árlegum samráðsfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem að þessu sinni er haldinn í Ríga í Lettlandi 26. og 27. ágúst.
Á fundinum verða ræddar tillögur um framtíðarsamstarf ríkjanna, sem Valdis Birkavs, fyrrum utanríkisráðherra Lettlands, og Sören Gade, fyrrum varnarmálráðherra Danmerkur, var falið að leggja fyrir fundinn. Auk þess verður að venju fjallað um afstöðu ríkjanna til helstu mála á alþjóðavettvangi og starf alþjóðastofnana svo sem Atlantshafsbandalagsins og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.