Halla Gunnarsdóttir ráðin aðstoðarmaður dómsmála- og mannréttindaráðherra
Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar, dómsmála- og mannréttindaráðherra. Hún hefur þegar hafið störf.
Halla Gunnarsdóttir er kennari að mennt og með meistarapróf í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Hún starfaði sem blaðamaður frá 2003-2009 og var aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í heilbrigðisráðuneytinu meðan hann gegndi því embætti. Síðastliðið ár hefur Halla fengist við ritstörf og við fræðimennsku á sviði öryggis- og varnarmála.