Forsætisráðherra fundar með Ivan Gasparovic forseta Slóvakíu
Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, tók í dag á móti forseta Slóvakíu, Ivan Gasparovic í heimsókn hans til Íslands. Ítarlega var rætt um málefni Evrópusambandsins, efnahagsmál landanna beggja og aðstæður rómafólks. Einnig var rætt um ýmis sameiginleg hagsmunamál m.a. nýtingu og vernd vatns og jarðhitaauðlinda landanna.