Hoppa yfir valmynd
28. september 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherra lýsir sig vanhæfan til að fjalla um skipulagsmál Ölfuss

Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra hefur lýst sig vanhæfa til að fjalla um aðalskipulag Ölfuss 2002-2014, sem tekur meðal annars til Bitruvirkjunar. Í kjölfarið hefur Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra verið settur umhverfisráðherra í málinu. Svandís lýsir sig vanhæfa vegna ummæla um Bitruvirkjun sem hún hefur látið falla á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur og stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.

Umhverfisráðherra sat sem borgarfulltrúi í Reykjavík á árunum 2006-2009 og í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2007-2009. Þar tjáði ráðherra sig um skoðun sína á Bitruvirkjun með afgerandi hætti. Það er því niðurstaða umhverfisráðherra að draga megi í efa stjórnsýslulegt hæfi hans til að taka afstöðu til skipulagstillögu Ölfuss með vísan til hæfisreglna stórnsýsluréttarins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta