Umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytis
Umsóknarfrestur um embætti ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytisins rann út á miðnætti s.l.
Umsóknir bárust frá eftirtöldum: Ásgerður Jóna Flosadóttir, Baldur Pétursson, Guðrún Árnadóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Helga Jónsdóttir, Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, Kjartan Gunnarsson, Kristjón Jónsson, Magnús Ingi Erlingsson, María Lóa Friðjónsdóttir, Óskar Gísli Sveinsson, Pétur Jónasson, Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir, Sigurjón Haraldsson, Sigurlaug Ýr Gísladóttir, Snorri H. Guðmundsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Þorgeir Pálsson, Þóra M. Hjaltested, Þórður Víkingur Friðgeirsson.
Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað hæfnismatsnefnd til þess að meta umsækjendur. Í nefndina hafa verið skipuð: Kristín Benediktsdóttir, lögfræðingur, formaður, Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari, og Sveinn Hannesson, viðskiptafræðingur.