Hoppa yfir valmynd
7. október 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óbreytt fyrirkomulag á rjúpnaveiði

Rjúpa
Rjúpa

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði óbreytt frá fyrra ári. Veiðitímabilið hefst föstudaginn 29. október og stendur til sunnudagsins 5. desember. Á tímabilinu verður heimilt að stunda veiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og verða veiðidagar því átján talsins.

Umhverfisráðherra greip til þeirrar nýbreytni í fyrra að setja reglugerð um rjúpnaveiði til þriggja ára, nema að óvænt þróun yrði í rjúpnastofninum á tímabilinu. Að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar var veitt heldur meira af rjúpu í fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Til að stuðla að því að veiði fari ekki aftur fram úr veiðiráðgjöf hefur umhverfisráðherra lagt áherslu á það við skotveiðimenn að þeir stundi hófsamar veiðar, en það er ein helsta forsenda þess að rjúpnaveiðar geti haldið áfram með sama hætti á næsta ári. Auk þess verður sölubann áfram í gildi á rjúpu og rjúpnaafurðum og ákveðið svæði á Suðvesturlandi verður áfram friðað fyrir veiði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta