Nr. 57/2010 - Upplýsingarfulltrúi ráðinn
Í gær, 11. október 2010, réð Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Bjarna Harðarson í tímabundið starf upplýsingafulltrúa í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.
Bjarni var valinn úr hópi 29 umsækjenda. Bjarni er bóksali og fyrrverandi alþingismaður, ritstjóri og blaðamaður. Við fréttaskrif hefur hann fjallað sérstaklega um málefni sjávarútvegs- og landbúnaðar.