Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember
Degi íslenskrar tungu verður fagnað í fimmtánda sinn 16. nóvember 2010.
Fastlega má gera ráð fyrir að flestir skólar landsins og margar aðrar stofnanir og samtök fagni deginum með einhverju móti.
Degi íslenskrar tungu verður fagnað í fimmtánda sinn 16. nóvember 2010.
Fastlega má gera ráð fyrir að flestir skólar landsins og margar aðrar stofnanir og samtök fagni deginum með einhverju móti.
Nýr opinber fánadagur á Íslandi.
Degi íslenskrar tungu var nýlega bætt við íslensku fánadagana. Á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, skal sem sé draga fána að hún við hús opinberra stofnana.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að huga að því að nota 16. nóvember, eða dagana þar í kring, til að hafa íslenska tungu sérstaklega í öndvegi. Hægt er að fagna deginum með margvíslegu móti, t.d. upplestri, ritunarsamkeppni, verðlaunum og viðurkenningum, handritasýningum, bókakynningum, samkomum af ýmsum toga og tónlistarflutningi svo að fátt eitt sé nefnt.
Minnt er á vef dags íslenskrar tungu: www.menntamalaraduneyti.is/menningarmal/dit/
Þar má m.a. finna hugmyndabanka kennara og upplýsingar um Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem mennta- og menningarmálaráðherra afhendir árlega 16. nóvember.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur falið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði á degi íslenskrar tungu 2010. Þeir sem vilja kynna viðburði sína á vef dags íslenskrar tungu eru hvattir til að senda upplýsingar á netfangið [email protected]. Þangað má jafnframt beina fyrirspurnum um hvað eina sem varðar hátíðisdaginn.
Katrín Jakobsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra
Guðrún Nordal
forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum