Nefnd um erlenda fjárfestingu skilar áliti um tengd félög HS orku hf.
Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur skilað áliti til efnahags- og viðskiptaráðherra um tilkynningu HS Orku hf. á fjárfestingu Magma Energy Sweden AB á öllum dóttur- og hlutdeildarfélögum HS Orku hf. Nefndin lítur því svo á, eftir að hafa skoðað og rætt ítarlegt lögfræðiálit á málinu, að erlend fjárfesting í dóttur- og hlutdeildarfélögum HS Orku hf. sé hluti af fyrri afgreiðslu nefndarinnar. Nefndin hefur tvívegis fjallað um fjárfestingu Magma Energy Sweden AB í HS Orku hf. og birti þau álit 22. mars sl. (álit meirihluta, álit minnihluta) og 7. júlí sl.