Hoppa yfir valmynd
19. október 2010 Matvælaráðuneytið

Nr. 60/2010 - Ráðherra hittir fyrrum evrópuþingmenn

JB-og-ex-esb-thingmadur
JB-og-ex-esb-thingmadur

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók í gær á móti hópi fyrrverandi Evrópuþingmanna frá samtökunum European Parliament Former Members Association.

Pat Cox frá Írlandi fór fyrir hópnum en meðal gesta voru fyrrum þingmenn frá mörgum ESB-ríkjum, alls 25 manns.

Á fundinum fóru fram mjög hreinskiptnar og góðar umræður. Jón Bjarnason fór yfir þá málaflokka sem heyra undir hans ráðuneyti og ræddi m.a. afstöðu sjávarútvegs og landbúnaðar til þeirra viðræðna sem nú eiga sér stað um hugsanlega ESB aðild Íslands. Þá greindi ráðherra frá afstöðu sinni og síns flokks til málsins. Jón Bjarnason ítrekaði að það væri Alþingi sem hefði samþykkt að senda inn umsókn um aðild að ESB og jafnframt sett mjög skýrar línur um þær umræður og meginhagsmuni Íslands. Ekki mætti víkja frá þeirri stefnu nema með samþykki Alþingis.

Þær upplýsingar að mjög skiptar skoðanir væru bæði innan ríkisstjórnar og Alþingis um aðildarumsóknina komu sumum gestanna mjög á óvart. Spurðu þeir mjög út í það hvernig hægt væri að vinna að aðildarsamningi við slíkar kringumstæður.

ex_esb_thingm1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta