Kynningarfundur um norræna styrki
Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2. - 4. nóvember verður efnt til kynningarfunda um samnorræna styrkjamöguleika. Margar samnorrænar stofnanir senda fulltrúa á þingið og var tækifærið nýtt til þess að vera með sameiginlegar kynningar á þeim stofnunum sem veita mestu fé í styrki. Styrkirnir eru ætlaðir fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og einstaklingum.
Fundirnir verða þrír og eru þemaskiptir:
- Styrkir til menningar og lista, 2. nóvember kl. 15-17, Listaháskóli Íslands.
- Styrkir til nýsköpunar og rannsókna, 3. nóvember kl. 9-11, Norræna húsið.
- Styrkir til umhverfis- og orkumála, 3. nóvember kl. 14-16, Norræna húsið.
Skráning á kynningarfundina fer fram á netfanginu: [email protected]. - nauðsynlegt er að tilkynna á hvaða fund er verið að skrá mætingu. Vinsamlegast tilkynnið mætingu fyrir 1. nóvember. Fundirnir eru haldnir í samvinnu við Norræna húsið.
Nánari upplýsingar um fundina er að finna á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.