Hoppa yfir valmynd
30. október 2010 Matvælaráðuneytið

Íslendingar koma að virkjunarmálum á Indlandi

Dr Farooq Abdullah ráðherrra nýrra og endurnýjanlegra orkugjafa á Indlandi og Katrin Júliusdóttir iðnaðarráðherra.
Dr Farooq Abdullah ráðherrra nýrra og endurnýjanlegra orkugjafa á Indlandi og Katrin Júliusdóttir iðnaðarráðherra.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra , Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri og fulltrúar íslenskra orkufyrirtækja sóttu ráðstefnuna DIREC 2010 um endunarnýjanlega orku sem var að ljúka í Nýju-Delhi. Á fundum iðnaðarráðherra með indverskum ráðamönnum kom fram mikill áhugi á samstarfi við Íslendinga um virkjun jarðhita og vatnsafls. Samstarfsnefnd Íslands og Indlands um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa hélt sinn fyrsta formlega fund. Reykjavik Geothermal undirritaði samning um samstarf við indverska fyrirtæki Thermax um byggingu jarðhitavirkjunar á Indlandi og Landsvirkjun og Power og verkfræðistofan Verkís skrifuðu undir ráðgjafarsamning um byggingu og rekstur vatnsaflsvirkjana í Himalayafjöllum.

Fundir iðnaðarráðherra með indverskum ráðamönnum
Í framhaldi af DIREC 2010 - ráðstefnu um endurnýjanlega orku í Nýju-Delhí – átti Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sérstaka fundi með Dr. Farooq Abdullah, ráðherra nýrra og endurnýjanlegra orkugjafa á Indlandi, Omar Abdullah, forsætisráðherra í  Kasmír, og ráðherra vísinda- og tæknimála ásamt forstjóra Orkubúsins í Kasmír. Á fundunum kom fram mikill áhugi á samstarfi við Íslendinga um virkjun jarðhita og vatnsafls.

Fyrsti formlegi fundur samstarfsnefndar Íslands og Indlands um endunýjanlega orkugjafa
Samstarfnefnd Íslands og Indlands um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa hélt fyrsta formlega fund sinn í ráðuneyti umhverfisvænnar orku í Nýju Delhi í dag.  Nefndarmennirnir  Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri og Gauri Singh ráðuneytisstjóri voru í fyrirsvari á fundinum og var gerð áætlun um samstarf milli ríkjanna á sviði jarðhitamála. Fyrsti áfanginn verður aðkoma íslenskra sérfræðinga að frekari rannsóknum á þekktum jarðhitasvæðum á Indlandi  í samvinnu við indversku jarðvísindastofnunina (NGRI). Samhliða er unnið að vali staða til þess að reisa tilraunavirkjun þar sem einnig verður lögð áhersla fjölbreytta nýtingu jarðhitans og þróun byggðar og atvinnukosta.

Samstarf Reykjavík Geothermal og Thermax
Reykjavík Geothermal og indverska fyrirtækið Thermax skrifuðu í dag undir samning um samstarf við byggingu jarðhitavirkjana á Indlandi á heimili Dr. Farooq Abdullah að viðstaddri Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra,  samstarfsnefnd í orkumálum og íslenskri viðskiptasendinefnd.

Ráðgjafasamningur Landsvirkjun Power og Verkís vegna virkjana í Himalayafjöllum
Á DIREC ráðstefnunni var einnig skrifað undir ráðgjafarsamning milli Landsvirkjunar Power og verkfræðistofunnar Verkís annarsvegar og Krishna Hydropower, Gita Investment og OM Energy hinsvegar um hönnun, byggingu og rekstur vatnaflsvirkjana í Himalayafjöllum.

Dr Farooq Abdullah ráðherrra nýrra og endurnýjanlegra orkugjafa á Indlandi og Katrin Júliusdóttir iðnaðarráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta