Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2010 Matvælaráðuneytið

Aukinn stuðningur við minni sjávarbyggðir

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag undirritað tvær reglugerðir sem fela í sér aukningu aflamarks til stuðnings minni byggðarlögum á fiskveiðiárinu 2010/2011. Aukningin er innan heimildar 10. gr. laga um stjórn fiskveiða en þar er tiltekið að ráðherra geti úthlutað allt að 12.000 tonnum af óslægðum botnfisk vegna stuðnings við byggðarlög.

Hámark úthlutunar til minni byggðarlaga sbr. 1. tl. a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiðar er hækkuð úr 150 tonnum í 300 tonn. Tiltekið er að þessi breyting er almenn og kemur öllum þeim minni byggðarlögum til góða er falla undir hin almennu skilyrði.

Í samræmi við þetta hefur verið ákveðið að auka heildaraflamark fiskveiðiársins um 460 þorskígildistonn og rennur sú aukning alfarið til aðgerðarinnar. Með þessari hækkun er jafnframt komið í veg fyrir að  raskað sé aðstæðum annarra byggðarlaga er njóta stuðnings skv. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða.  

Með hliðsjón af þessu verður það aflamark sem úthlutað er sérstaklega til stuðnings byggðarlögum samtals  4.345 tonn á fiskveiðiárinu sem er lítið eitt lægra en það var á árabilinu frá 2005 til 2008. Tiltekið er hér að á s.l. þremur fiskveiðiárum hefur verið úthlutað 760 tonnum meira til stuðnings byggðarlögum en það sem raunverulega hefur veiðst á sama tímabili undir þessari heimild.

Vakin er athygli á því að skipum er skylt að landa í heimahöfn tvöföldu því magni sem úthlutað er vegna stuðnings við byggðarlög ásamt því sem vinnsluskylda gildir í viðkomandi byggðarlagi og verður ekki veitt undanþágu frá því ákvæði vegna þeirrar aukningar sem hér er ákveðin.

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2010/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 662/2010 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2010/2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta