Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Haítíbúar komnir til fjölskyldusameiningar á Íslandi

Sunnudaginn 7. nóvember komu þrír einstaklingar frá Haítí til Íslands til búsetu, tímabundið eða til frambúðar. Um er að ræða fjölskyldusameiningu vegna hamfaranna í Haítí í janúar síðastliðnum. Þetta eru tvö börn (sonur, 11 ára, og fósturdóttir, 13 ára) haítískrar konu sem býr hér og móðir hennar (51 árs), amma barnanna.

Tekið er á móti hópnum á grundvelli sérstakra viðmiðunarreglna sem voru mótaðar að frumkvæði ríkisstjórnarinnar í kjölfar jarðskjálftans á Haítí. Samkvæmt þeim gátu Haítíbúar búsettir hérlendis sótt um fjölskyldusameiningu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Reglurnar miðast við fjölskyldusameiningu með tilliti til mannúðarsjónarmiða á grundvelli laga um útlendinga, nr. 96/2002, og er í þeim miðað við ákvæði laganna um tiltekin fjölskyldutengsl.

Fólkinu er veitt aðstoð við að komast til Íslands. Félagsleg þjónusta af hálfu viðkomandi sveitarfélags er veitt á kostnað ríkisins í ákveðinn tíma, auk íslenskukennslu og eftir atvikum annarri aðstoð sem gert er ráð fyrir í samningi ríkisins og Rauða kross Íslands. Verkefnisstjóri frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar hefur veitt aðstoð við undirbúning fjölskyldusameiningar samkvæmt reglunum.

Hópurinn flaug til Parísar í fyrradag frá Port-au-Prince í Haítí, og þaðan til Íslands í gær. Fjölskyldan verður búsett í Kópavogi og nýtur þar aðstoðar félagsþjónustunnar sveitarfélagsins. Nú tekur við aðlögunarskeið, en fyrstu dagarnir fara í hvíld eftir langt ferðalag. Von bráðar hefja börnin skólagöngu í Álfhólsskóla í Kópavogi.

Flóttamannanefnd annast móttöku hópsins fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Auk fulltrúa þess ráðuneytis eru þar fulltrúar frá dómsmála- og mannréttindaráðuneyti, utanríkisráðuneyti og Rauða krossi Íslands. Formaður flóttamannanefndar er Mörður Árnason og starfsmaður hennar Linda Rós Alfreðsdóttir, sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneyti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta