Styrkir til háskólanáms í Finnlandi
Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2011-2012.
Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2011-2012. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Styrkirnir eru ætlaðir til doktorsnáms, rannsókna og kennslu á háskólastigi. Umsóknir um styrki til doktorsnáms njóta forgangs. Styrkir eru veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 1200 evrum á mánuði.
Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vef CIMO
Mennta- og menningarmálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina og skulu umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, sendar ráðuneytinu.
Nánari upplýsingar veitir Sunna Viðarsdóttir.í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011.