Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2010 Matvælaráðuneytið

Nr. 66/2010 - Ráðherra setur strangar reglur um transfitusýrur að danskri fyrirmynd

 

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að setja reglur um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Reglur á Íslandi verða að danskri fyrirmynd.  

Rannsóknir sýna að neysla á transfitusýrum eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum og eru í þeim efnum taldar mun skaðlegri en önnur fita.  

Iðnaðarframleiddar transfitusýrur sem um ræðir myndast þegar olía er hert að hluta. Danir hafa gengið á undan öðrum þjóðum með því að banna að magn slíkra transfitusýra í matvælum fari yfir 2 gr af hverjum 100 gr fitu. Nokkrar aðrar Evrópuþjóðir hafa nú fetað sig í sömu átt og í Bandaríkjunum og Kanada er skylt að geta um magn transfitusýra við merkingu matvæla.

Talið er að meðalneysla Íslendinga á transfitusýrum hafi farið lækkandi á undanförnum árum en jafnframt eru vísbendingar um að ákveðinn hluti fólks neyti meira af trans-fitusýrum en þau viðmið sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur birt.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta