Hægt að ná miklum sparnaði í orkunotkun bygginga.
Hér á landi hefur ekki farið mikið fyrir umræðu um orkunýtni og orkusparnað. Þessi málaflokkur hefur hins vegar verið ofarlega á baugi erlendis. Norðurlöndin hafa í ýmsu verið þar í fararbroddi og Evrópusambandið hefur sett fram markmið um allt að 20% orkusparnað árið 2020 m.v. árið 2006. Hér á landi eru við smám saman að vakna til meðvitundar um mikilvægi þessa máls og þann 11. nóvember stóð iðnaðarráðuneytið fyrir ráðstefnu um orkunýtni í byggingum í samstarfi við Orkustofnun, Orkusetur, Iðntæknistofnun, Neytendastofu og Samtök iðnaðarins.
Ráðstefnan var vel sótt og þar kom glögglega fram að margir möguleikar eru til að spara orku og nýta hana betur og koma þannig í veg fyrir sóun náttúruauðlinda.
Meðal fyrirlesara var Andrés Þórarinsson frá verkfræðistofunni Vista, sem sýndi fram á að með því að kortleggja orkunotkun í húsnæði og gera úrbætur sem kosta lítið, má spara mikla fjármuni. Nefndi hann sérstaklega einföld atriði eins og að slökkva ljós þegar ekki er þörf á lýsingu og stilla ofna þannig að ekki sé full kynding að næturlagi.
Ragnar Gunnarsson frá ICEconsult greindi frá svipuðum niðurstöðum. Tók hann dæmi af 11 byggingum í eigu sama aðila. Árið 2007 þegar fyrirtækið hans fór yfir orkunotkun í byggingunum var orkusóun í þeim um 60% yfir viðmiðunarmörkum. Ári síðar var þessi sóun komin niður í 28% og árið 2009 var sóunin komin niður í 12%. Í þessu dæmi var sparnaður eigandans um 3,5 milljónir króna á ári.
Einnig var fjallað um varmadælur og þá miklu möguleika sem leynast víða um land til notkunar á þeim, sérstaklega á svokölluðum köldum svæðum, þar sem ekki er aðgangur að jarðhitavatni til kyndingar.
Helstu niðurstöður ráðstefnunnar eru að eftir miklu sé að slægjast þegar kemur að betri nýtingu orku hér á landi, og á það jafnt við um heitt vatn sem raforku. Með bættri orkunýtni er stuðlað að betri nýtingu orkuauðlindanna og orku sem sparast má nýta til atvinnuuppbyggingar.
Landsvarmi erindi Kristján Ólafsson
Lýsingarhönnun erindi Þólrdís Harðardóttir
Orkumerkingar erindi Tryggvi Axelsson
Orkusparnaður Verkís erindi Guðjón Ólafsson
Orkusparnaður erindi Einar Helgason
Perur erindi Arnar Þór Hafþórsson