Auglýsing um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála
Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags.
Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:
- Verkefni og rannsóknir sem vinna gegn fordómum og auka fjölmenningarlega færni.
- Verkefni og rannsóknir sem vinna að félagslegri virkni meðal innflytjenda.
- Verkefni og rannsóknir sem stuðla að bættri stöðu innflytjenda á vinnumarkaði.
Önnur verkefni koma einnig til álita.
Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Grasrótar- og hagsmunafélög innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um í sjóðinn. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 12 milljónir króna. Styrkir geta verið að hámarki 75% af heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2010. Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er aðgengilegt á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytis. Þar er einnig að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda, framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda og reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við meðferð umsókna.
Nánari upplýsingar fást í félags- og tryggingamálaráðuneyti í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected]